Hildigunnur Rúnarsdóttir hóf tónlistarnám 7 ára gömul, sem fiðlunemandi í Tónlistarskóla Garðabæjar, og skömmu síðar í Skólakór Garðabæjar.  Hún lauk prófi frá tónfræðadeild Tónlistarskólans í Reykjavík vorið 1989, með tónsmíðar sem aðalgrein.  Síðan nam hún tónsmíðar og formfræði nútímatónlistar  hjá professor Günter Friedrichs í Hamborg og Svend Hvidtfelt Nielsen í Kaupmannahöfn.  Hildigunnur hefur starfað með ýmsum kórum, þ.á.m. sönghópnum Hljómeyki.  Helstu verk eru m.a. barnaóperan Hnetu-Jón og gullgæsin, Blandaðir dansar fyrir hljómsveit, Konsert fyrir orgel, strengi og slagverk, Messa í minningu Guðbrands Þorlákssonar, fyrir kór, einsöngvara og hljómsveit og Messa fyrir Jón Vídalín fyrir kór, einsöngvara og kammersveit.  Einnig liggur eftir hana fjöldi kórverka og sönglaga.  Sumrin 1994 og 1997 voru verk Hildigunnar, Syngur sumarregn, fyrir kór og sópran sóló og Andvökunótt, fyrir kór og baritón sóló valin á geisladiska kórahátíðarinnar Europa Cantat. 

Hildigunnur býr í Reykjavík ásamt eiginmanni og þremur börnum þeirra

 
Um mig